Demasiado tiempoEyrún Halla Haraldsdóttir
Jáhá halló allir og gleðileg jól og nýtt ár og það allt saman... Kannski svolítið seinar kveðjur en þegar vegalengdin er svona löng koma kveðjurnar stundum seint til skila vegna ýmissa ástæðna. Og vill líka afsaka hér með skammarlegt bloggleysi og vanupplýsingu. Það er ekki það endilega að ég hef ekki haft tíma til þess, þvert á móti þar sem ég er gjörsamlega að lifa letilífi hérna, það er eins og allt stoppi hérna á sumrin og eina það sem fólk gerir sem ekki er að vinna, er að fara í sund, að vatninu, borða ís, fara í grillveislur og út að dansa... Ágætt væri nú að sumarfríin á Íslandi væru aðeins afslappaðri, því stundum er þetta einum of mikið letilíf og verður maður aðeins þreyttur á því ótrúlegt en satt... :Þ
En að öðrum málefnum, það hefur sko margt á daga mína drifið síðan seinustu bloggfærslu, og mjög skemmtilegt þar að auki. Var galaball í skólanum mínum þar sem útskriftarnemar og fjölskyldur þeirra borðuðu mat og var síðan dansað fram á morgun. Fékk þann skemmtilega „heiður" að þurfa að stunda upp og segja eitthvað við bekkjarfélagana mína fyrir framan alla á spænsku...UUUUUUUU..... uuuuu..uuuuu já hvað get ég sagt hafði ekki hugmynd og dreif mig bara að segja eitthvað man ekki einu sinni hvað og settist niður ábyggilega eins og epli í framan... haha.. en jújú ágætt minning í reynslubankann.. hitti íslending í fyrsta skipti í 4 mánuði og var hálf kjánalegt að tala íslensku við aðra persónu, kláraði skólann, og já það var salsasýning gekk nú svo sem fínt, búin að fara í endalausar grillveislur og borða yfir mig af eitthverju nautakjöti og þessar grillveislur eru yfirleitt um miðnætti, ekki alveg það besta svona rétt áður en maður fer að sofa.. haha..
Jólin hérna voru svo sem fín, ekkert jafnast þó á við heima og enginn hamborgarahryggur.. En mér leið nú aldrei eins og það væru jól í næstum 40 stiga hita og eitthvað gervijóltré borðandi empanadas og salat... hlustandi á reagaton og cumbia á meðan jólamaturinn er borðaður, enginn jólandi með heims um ból í útvarpinu.. svo fara nú yfirleitt flestir hérna út að djamma eftir, ekki alveg því sem maður er vanur en ég gerði það nú ekki þar sem frændfólk var hérna í heimsókn og var verið að borða til klukkan 4 um morguninn.. :P
Var líka kveðjupartý hjá bekknum mínum sem var haldið aðeins upp í sveit í „sumarbústað" semfjölskylda eins bekkjarbróðir minns á. Og auðvitað akkurat þetta kvöld þurfti ég að gleyma mínu ástkæra OFF sem ég tek með mér næstum hvert sem er , en þetta er sprey svo að flugur bíti þig ekki. En jújú allt í lagi þarf ekki að vera neitt svo slæmt, nóttin leið og ekkert bar á bitum ennþá, hélt ég væri að meika þetta en NEEEIIII svona um það bil 6 um morguninn fóru þessi kvikindi að birtast eitt af öðru, og þetta voru sko engar venjulegar moskítoflugur, mætti halda að þær hafi verið á sterum, settust á mann ofurstórar og þær fóru sko ekki við fyrsta högg, heldur þurfti að slá nokkur högg til að þær myndu fara, lá við að þú fékkst marblett.. En já eftir þetta kvöld var ég ábyggilega með svona 50 bit.. að minnsta kosti bara á vinstri handlegg voru þau 17 og ekki voru ristarnar betri... 3 dögum eftir þetta fór ég síðan í afmæli sem haldið var hjá vatninu hérna og vorum þar allan daginn í steikjandi hita og SÓL!!!! sem týdir s.s. bruni.. ... Allir höfðu orð á því hvað ég væri brennd,(you're so fucking burned.. til þín Stjana mín) og höfðu voðalegar áhyggjur af aumingja Íslendinginum sem væri nú ekki beint vanur þessu.. En það góða við þetta allt saman að þegar ég hætti loksin að vera rauð var ég nú komin með smá tan hérna,, eitthvað til að gleðja mig yfir, en auðvitað með minni einskæru heppni byrjaði ég skipta um ham og varð bara hvít aftur..:/
Nú áramótin hérna voru nú frekar róleg, get ég sko fullyrt, var borðað klukkan tólf og ætlaði ég svo að skella mér út og taka á móti nýja árinu... en nei allt kom fyrir ekki, taxarnir gengu og ekki og þeir sem ég gat fengið far hjá bjuggu langt í burtu og þyrfti ég að taka taxa til að komast þangað eða þá að þeir voru staddir í öðrum bæ.. Þannig ég endaði með að sitja heima með sárt ennið og horfa á Forest gump.. frekar lélegt..
En annars það sem af er liðið af nýja árinu búið að vera nokkuð gott, 15 ára afmæli(sem eru næstum því eins og brúðkaup) og kveðjupartý hvert á eftir öðru þar sem Nov, Joe, Michael og Ricarda(skiptinemar) voru að enda dvöl sína og eru farin núna, sem er frekar leiðinlegt en svona er það bara..
En annars þá er ég að fara bara núna á eftir í smá ferðalag, hlakka rosalega til. Er s.s. að fara að ferðast um suður Argentínu. Fer fyrst að heimsækja Hafliða í 6 daga (20 tíma rútuferð) sem býr í bæ hér fyrir sunnan og fer síðan eftir það í ferð með AFS að skoða meira og kem ekki heim fyrr en 1. Feb. Um það bil 2 og hálf vika, smá frí í fríinu..:D En eftir það fer ég á 4 vikna námskeið í háskólanum og fer síðan aftur í mánaðar frí.. ágætt.
En annars fer þetta nú að vera komið gott, margt frá að segja en hérna hef ég nú bara stiklað á stóru, ekkert svaka skemmtilegt blogg , hef þó alveg lent í fleirum óheppilegum kringumstæðum. Fór s.s. niður í háskóla hérna einn daginn til að sækja bók fyrir námskeiðin, frekar óþægilegt að labba þarna inni ein og vita ekki neitt og allir að horfa á þig, sótti bókina og ætlaði nú að drífa mig út en það vildi svo skemmtilega til að það birtist allt í einu glerhurð upp úr þurru og ég náttúrulega skallaði hana eins og ég hefði aldrei gert annað, vandræðalegt.. reyndi að láta eins og ekkert hefði í skorist og lét mig hverfa. Var líka í sundlauginni hérna um daginn og var hún full af fólki og ætlaði að skella mér upp á bakkann, var alveg að komast upp úr en þá gaf jafnvægið sig og renn ég aftur ofan með miklum skell og kostaði þetta mig einn svakalegan marblett á höndina.. hóst vandræðalegt, hef tekið stigann eftir þetta atvik..
En já nóg komið í bili af þessu rugli, reyni nú að koma með eitt hérna eftir ferðina mína..
Chao Todos
Eyrún sem er ennþá að deyja úr hita og bita..:)
Athugasemdir
En já haltu áfram að skemmta þér svona vel, þetta er einstakt ævintýri;) og vertu duglegri að blogga stelpa!;) Gros Bisons;**

En já.. koma svo.. reyna að blogga aaaaaðeins oftar..
En hvað er að frétta af þessu pakka sem ég sendi? hefur ekkert spurst til hans?