Ferð, háskóli og miðnæturmorð..Eyrún Halla Haraldsdóttir

          Það er sko margt og mikið sem hefur á daga mína drifið síðan ég skrifaði seinasta blogg(sem er langt síðan), en það er eiginlega núna fyrst sem ég hef tíma til að skrifa nýtt.. Veit ekki alveg hvar á að byrja en held að það sé best að byrja á byrjuninni..

         S.s. fór í ævintýralegt ferðalag sem hófst þann  14 janúar klukkan 6 að eftirmiðdegi á staðartíma. Úti var um 43°C þegar ég steig upp í langferðbílinn og átti að höndum rúmlega 20 tíma rútuferð... úfff.. En þetta myndi nú ábyggilega sleppa þar sem þetta farartæki var útbúið öllum nýjustu nútímaþægindum, leðursæti, flatskjáir, loftkæling og mikið pláss. Naut nú útsýninsins áður en myrkra fór og horfði síðan á eina kvikmynd. Ætlaði nú síðan að halla mér, en það varð alltaf kaldara og kaldara með hverri mínútunni, og ég í stuttbuxum og hlírabol og meða eitt lítið teppi sem ég vissi ekki hvort ég átti að nota í að hita mér frá tánum og upp að hnjám eða hendurnar,, brrr.. seinna komst ég að því að það er eitthver árátta hjá rútubílstjórum að hafa kalt í farartækjunum á nóttunni, þannig maður verður að fara fullklæddur í svona ferðir.. alltaf er maður vitur eftir á. Átti síðan að skipta um rútu í einum bæ, sem var eitthver hálftími á milli. En rútan sem ég var í seinkaði um einhvern 1 og ½ tíma vegna tæknlegra vandamála(ábyggilega eitt of miklu rafmagni í að frysta rútuna um nóttina), og ég fékk nett taugkast, hvað ef hin rútan væri farin og næsta rútuferð ekki fyrr en á morgun!! En til allra hamingju var beðið eftir mér því það voru líka fleiri farþegar í sömu aðstæðum..en jæja eftir langa, svefnlausa og hitabreytilega rútferð kom ég loks til Hafliða. Hann býr í um 30.000 manna hippabæ í eitthverjum fjalladal, ekkert smá fallegur staður, eins og eitthvert ævintýri. Rosalega gaman að hitta einhvern Íslending aftur og tala íslensku!!! Var svolítið skrýtið til að byrja með og var alveg ruglaður.. 

         En já ég var s.s. hjá Hafliða í um 6 daga, og gerðum við  sko margt og mikið skemmtilegt, skoðuðum ýmsa staði, fórum til Bariloche(stór ferðamannabær í Argentínu með allsvakalega skemmtistaði hehe), fórum í 50 afmæli sem var engu líkt, svömluðum í á og borðuðum mikið af besta ís heimi og bestu vöfflum í heimi með ferskum, jarðaberjum, kirsuberjum og  hindberjum..nammi, namm...  Þarna var líka alltaf svona götumarkaður og hljómsveitir að spila eitthverja afríska tónlist eða reggí og næsti maður sem sat við hliðina á þér á torginu var að reykja gras.. ekki til rólegri bæ held ég haha..   En eftir þessa skemmtilegu dvöl hélt mín ævntýralega för áfram og fór ég nú í bæ sem heitir Neuquén.

         Þar átti ég að hitta eitthvað AFS fólk af því ég ætlaði að fara í ferð með þeim. Hitti það, steikjandi hiti og gisti í húsi hjá einum sjálfboðaliðanum ásamt stelpu frá Bandaríkjunum sem heitir Rachel. Daginn eftir hitti ég hina krakkana sem voru að fara í ferðina og mér til mikillrar ánægju var víst Una (önnur stelpa frá Íslandi) líka að fara í þessa ferð, vorum um 25 krakkar að fara og þar af 13 Þjóverjar og 4 Austurríkisbúar, s.s. mikið af þýsku. En þetta var mjög fínn hópur og skemmtilegir krakkar. Stigum síðan upp í rútuna sem við áttum eftir að eyða möööööööörrrrrgggggguuuuuummmmmm klukkutímum í. En samtals aðeins í þessari ferð með AFS vorum um 5000 km sem þurfti að keyra.. já Argentína er stór.. hélt líka að á Íslandi væri mikil eyðimörk,, en í þessari ferð áttaði ég mig virkilega á hvað er víðátta, keyrðum mörghundruð kílómetra án þess að það væri ekki neitt og þá meina ég EKKI NEITT.... Aðeins vegurinn svo langt sem augað eygði.... En leiddist þó aldrei í rútunni, alltaf nóg að gera, tala, spila eða sofa... hehe

         Heimsóttum marga bæi og sáum marga skemmtilega staði, sem væri nú heldur langdregið að lýsa þannig ég læt bara myndirnar tala sem hægt er að finna á www.myspace.com/eyrun90 í myndaalbúmi sem heitir Ferð suður..:) En við fórum alla leið að bæ sem heitir Calafate. Lítill ferðmannabær sem er ábyggilega með meira af hótelum og gistiheimilum heldur en húsum. Fórum þar á hestbak og fékk ég þar þvílíka nostalgíu að ég væri á Íslandi, hífandi rok, frekar kalt og landslagið minnti mjög á Íslandi þar sem þessi bær stendur nú í jökulsvorfnum dal.. ef notaður er vísindalegur talsmáti... :P  Fórum að jöklinum sem er þarna, mjög fallegur, og fórum þar í jökulgöngu og siglingu, mjög stórbrotið allt saman. Vorum s.s. þarna í 3 daga..

         Fórum í nokkra strandarbæi, fór í sjóinn, sá mörgæs og komst að því hvað siesta þýðir í sumum bæum, var eins og enginn lifði þarna, ekki ein einasta hræða á götunum. Seinustu nóttina gistum við síðan á 5 stjörnu hótel, svakalega fansy, og rúm frá himnaríki(að minnsta kosti miðað við að sofa í rútum), en það var nú alveg til einskins, þar sem ekkert var farið að sofa og skellt sér síðan í sjóinn klukkan hálf 7 um morguninn.. ROKK...  Ferðinn endaði svo aftur þar sem hún byrjaði í Neuquén þar sem nokkur okkar gistu, skelltum okkur út um kvöldið þrátt fyrir engan svefn og held í alvörunni að ég hafi verið að dansa sofandi.. haha

         Fór síðan heim daginn eftir með rútu til San Juan sem var nú aðeins betri en sú fyrsta en einnig svefnlítil.. og kom þangað þann 1. Feb... Ógleymanleg ferð..:)

         Síðan núna allan febrúar er ég búin að vera svo dugleg að vera á einhverskonar inntökunámskeiðum fyrir háskólann, skilda fyrir alla, bæði kvölds og morgna, þar sem ég er bæði skráð í ferðamálafræði og blaðamennsku,,(poco loco) hehe.. jamm en ekki svo slæmt búin að kynnast fullt af nýju skemmtilegu fólki. Eina helgina kom líka frönsk stelpa hingað og gisti hjá mér, og einnig var Fiest del sol, sólarhátíðinn í 5 daga, fullt að gerast, og þann 1. Mars komu hingað 6 nýir skiptnemar í bæinn(þó enginn frá Íslandi), s.s. allt í gangi...

         En núna er ég þó aftur komin í frí því námskeiðin eru búin og búin að taka inngöngupróf, sem ég náði meira að segja..:P þannig eins og þið sjáið er ég ekki búin að hafa mikinn tíma í að vera að blogga eitthvað mikið, þannig núna kemur eitt alveg risa vaxið.....

          En já ég gleymdi næstum að segja..kakkalakkadráp.... Drap nefnilega fyrsta kakkalakkann minn eina nóttina... var  hálfgerð ráðgáta..:

Vaknaði um miðja nótt við eitthvað skringilegt hljóð, eitthvað spriklandi... Hugsaði með mér að þetta væri nú bara ýmindun, vegna skringilegra aukahljóða sem koma oft frá viftunni inni í herbergi.. beið smá stund og aftur heyrði ég hljóðið og var nú orðin fullviss um að þetta mál næði nú eitthvað lengra en til viftunnar. Aftur heyri ég hljóðið og er eins og það komi neðan frá í þetta skiptið.. Slekk á viftunni og kveiki ljósið. Lít undir rúmið, með ótta um hvað muni mæta mér... en þá heyri ég hljóði aftur og í þetta skipti kemur það úr áttinni þar sem kommóðan stendur.. Ég læðist að henni og heyri nú þetta undarlega hljóð skýrar en áður.. hvað er þetta? Mús að naga sér gat kommóðuna, leðurblaka föst ofan í skúffu(mikið um leðurblökur hérna) eða eitthvað stærra, gæti ekki verið að einn lítill kakkalakki gæti framleidd slíkan hávaða. Opnaði eina skúffuna og stökk frá en þar var ekkert.. Tek síðan eftir því að það er eitthvað plast sem liggur á milli skápsins og kommóðunnar ...  Kippi plastinu í burtu með eldsnöggum hreyfingum og allt í einu hættir hljóðið.. býð í rúmlega 10 sek. Þá allt í einu skíst eitthvað svart utan úr myrkrinu, og með þvílíkum viðbrigðum lyftist annar fóturinn á mér upp , og splass eitthvað hart kremst undan fótum mér... Örlög kakkalakkans ráðin..  og ráðgátan um hljóðið leyst og þar með gat ég aftur farið að sofa í hljóð og næði..:)

         En núna er þetta komið gott í bili,"smá" innskot hér frá lífi mínu í Argentínu, komnir nú þegar 7 mánuðir,  tíminn flýgur..

                                                                                              Hasta entonces

                                                                                                                                 La chica con el apellido raro..

Demasiado tiempoEyrún Halla Haraldsdóttir

 

                Jáhá halló allir og gleðileg jól og nýtt ár og það allt saman... Kannski svolítið seinar kveðjur en þegar vegalengdin er svona löng koma kveðjurnar stundum seint til skila vegna ýmissa ástæðna. Og vill líka afsaka hér með skammarlegt bloggleysi og vanupplýsingu. Það er ekki það endilega að ég hef ekki haft tíma til þess, þvert á móti þar sem ég er gjörsamlega að lifa letilífi hérna, það er eins og allt stoppi hérna á sumrin og eina það sem fólk gerir sem ekki er að vinna, er að fara í sund, að vatninu, borða ís, fara í grillveislur og út að dansa... Ágætt væri nú að sumarfríin á Íslandi væru  aðeins afslappaðri, því stundum er þetta einum of mikið letilíf og verður maður aðeins þreyttur á því ótrúlegt en satt... :Þ

                En að öðrum málefnum, það hefur sko margt á daga mína drifið síðan seinustu bloggfærslu, og mjög skemmtilegt þar að auki. Var galaball í skólanum mínum þar sem útskriftarnemar og fjölskyldur þeirra borðuðu mat og var síðan dansað fram á morgun. Fékk þann skemmtilega „heiður" að þurfa að stunda upp og segja eitthvað við bekkjarfélagana mína fyrir framan alla á spænsku...UUUUUUUU..... uuuuu..uuuuu já hvað get ég sagt hafði ekki hugmynd og dreif mig bara að segja eitthvað man ekki einu sinni hvað og settist niður ábyggilega eins og epli í framan... haha.. en jújú ágætt minning í reynslubankann.. hitti íslending í fyrsta skipti í 4 mánuði og var hálf kjánalegt að tala íslensku við aðra persónu, kláraði skólann, og já það var salsasýning gekk nú svo sem fínt, búin að fara í endalausar grillveislur og borða yfir mig af eitthverju nautakjöti og þessar grillveislur eru yfirleitt um miðnætti, ekki alveg það besta svona rétt áður en maður fer að sofa.. haha..

                Jólin hérna voru svo sem fín, ekkert jafnast þó á við heima og enginn hamborgarahryggur.. En mér leið nú aldrei eins og það væru jól í næstum 40 stiga hita og eitthvað gervijóltré borðandi empanadas og salat...  hlustandi á reagaton og cumbia á meðan jólamaturinn er borðaður, enginn jólandi með heims um ból í útvarpinu..  svo fara nú yfirleitt flestir hérna út að djamma eftir, ekki alveg því sem maður er vanur en ég gerði það nú ekki þar sem frændfólk var hérna í heimsókn og var verið að borða til klukkan 4 um morguninn.. :P

Var líka kveðjupartý hjá bekknum mínum sem var haldið aðeins upp í sveit í „sumarbústað" semfjölskylda eins bekkjarbróðir minns á. Og auðvitað akkurat þetta kvöld þurfti ég að gleyma mínu ástkæra OFF sem ég tek með mér næstum hvert sem er , en þetta er sprey svo að flugur bíti þig ekki. En jújú allt í lagi þarf ekki að vera neitt svo slæmt, nóttin leið og ekkert bar á bitum ennþá, hélt ég væri að meika þetta en NEEEIIII svona um það bil 6 um morguninn fóru þessi kvikindi að birtast eitt af öðru, og þetta voru sko engar venjulegar moskítoflugur, mætti halda að þær hafi verið á sterum, settust á mann ofurstórar og þær fóru sko ekki við fyrsta högg, heldur þurfti að slá nokkur högg til að þær myndu fara, lá við að þú fékkst marblett.. En já eftir þetta kvöld var ég ábyggilega með svona 50 bit.. að minnsta kosti bara á vinstri handlegg voru þau 17 og ekki voru ristarnar betri... 3 dögum eftir þetta fór ég síðan í afmæli sem haldið var hjá vatninu hérna og vorum þar allan daginn í steikjandi hita og SÓL!!!!  sem týdir s.s. bruni..  ... Allir höfðu orð á því hvað ég væri brennd,(you're so fucking burned.. til þín Stjana mín) og höfðu voðalegar áhyggjur af aumingja Íslendinginum sem væri nú ekki beint vanur þessu..  En það góða við þetta allt saman að þegar ég hætti loksin að vera rauð var ég nú komin með smá tan hérna,, eitthvað til að gleðja mig yfir, en auðvitað með minni einskæru heppni byrjaði ég skipta um ham og varð bara hvít aftur..:/

Nú áramótin hérna voru nú frekar róleg, get ég sko fullyrt, var borðað klukkan tólf og ætlaði ég svo að skella mér út og taka á móti nýja árinu... en nei allt kom fyrir ekki, taxarnir gengu og ekki og þeir sem ég gat fengið far hjá bjuggu langt í burtu og þyrfti ég að taka taxa til að komast þangað eða þá að þeir voru staddir í öðrum bæ.. Þannig ég endaði með að sitja heima með sárt ennið og horfa á Forest gump.. frekar lélegt..

En annars það sem af er liðið af nýja árinu búið að vera nokkuð gott, 15 ára afmæli(sem eru næstum því eins og brúðkaup) og kveðjupartý hvert á eftir öðru þar sem Nov, Joe, Michael og Ricarda(skiptinemar) voru að enda dvöl sína og eru farin núna, sem er frekar leiðinlegt en svona er það bara..

En annars þá er ég að fara bara núna á eftir í smá ferðalag, hlakka rosalega til. Er s.s. að fara að ferðast um suður Argentínu. Fer fyrst að heimsækja Hafliða í 6 daga (20 tíma rútuferð) sem býr í bæ hér fyrir sunnan og fer síðan eftir það í ferð með AFS að skoða meira og kem ekki heim fyrr en 1. Feb.  Um það bil 2 og hálf vika, smá frí í fríinu..:D En eftir það fer ég á 4 vikna námskeið í háskólanum og fer síðan aftur í mánaðar frí.. ágætt.

En annars fer þetta nú að vera komið gott, margt frá að segja en hérna hef ég nú bara stiklað á stóru, ekkert svaka skemmtilegt blogg , hef þó alveg lent í fleirum óheppilegum kringumstæðum.  Fór s.s. niður í háskóla hérna einn daginn til að sækja bók fyrir námskeiðin, frekar óþægilegt að labba þarna inni ein og vita ekki neitt og allir að horfa á þig, sótti bókina og ætlaði nú að drífa mig út en það vildi svo skemmtilega til að það birtist allt í einu glerhurð upp úr þurru og ég náttúrulega skallaði hana eins og ég hefði aldrei gert annað, vandræðalegt.. reyndi að láta eins og ekkert hefði í skorist og lét mig hverfa.  Var líka í sundlauginni hérna um daginn og var hún full af fólki og ætlaði að skella mér upp á bakkann, var alveg að komast upp úr en þá gaf jafnvægið sig og renn ég aftur ofan með miklum skell og kostaði þetta mig einn svakalegan marblett á höndina.. hóst vandræðalegt, hef tekið stigann eftir þetta atvik..

                En já nóg komið í bili af þessu rugli, reyni nú að koma með eitt hérna eftir ferðina mína..

                                                                                                                                                             Chao Todos

                                                                              Eyrún sem er ennþá að deyja úr hita og bita..:)

Hiti, sviti og bitiEyrún Halla Haraldsdóttir

 

                Sunnudagsmorgunn:  vakna við köllin í semituseljaranum(maður sem hjólar um hverfið, kallar með yfirnáttúrulega hárri rödd og selur semitas), veit ekki enn hvort ég sé vakandi eða sofandi. Reyni að hreyfa mig eitthvað og finn hvernig öll sængurfötin límast við mig. Úff langar ekkert meira en að fara í kalda sturtu.. Loks næ ég að standa á fætur og kveiki á viftunni inni í herbergi en hún virðist nú ekki gera mikið gagn blæs bara heitu lofti á mig. Störlast síðan inn á klósett, sest á klósettið í mestum rólegheitum og ætla að losa mig við þann vökva sem eftir er í líkamanum.. pissssssssssssss...... en síðan heyri ég eitthvað skringilegt aukahljóð með.. tiki tiki tiki tiki....eins og eitthvað lítið sé að hreyfa sig á ofurhraða.. finn svo eitthvað kitla mig í tærnar og ristina og ákveð að líta niður... og mæta mér þá tvö lítil svört augu og fálmarar... er þetta þá ekki stærðarinnar kakkalakki ég hendis upp, rétt náði að klára að pissa og tek næstum því klósettsetuna með mér, hífi upp um mig buxurnar og stekk fram.. úff það er rétt það er kominn pöddutími..

Og þetta er sko ekki eina atvikið þar sem pöddur koma við, köngulær í orðabókinni minni eða hárinu á mér, bjöllur á kexinu mínu og endalaus skemmtileg moskítóbit á ennþá skemmtilegri stöðum, eitt beint á olnboga beinið og síðan mitt uppáhald á rasskinnina, veit ekki alveg hvernig ég fékk það.. Er líka hérna með tvö skemmtileg á hægri kálfanum sem hafa undarlega þróun.. Byrja fyrst á að vera lítil og  útblásinn, verða síðan stór og rauð og klæja mikið og enda síðan með að verða einkhverskonar fjólu-marglituð eins og eitthver marblettur...  og hendurnar á mér.. ábyggilega svona 20 á hvorum handlegg,,, sé engan annan með svona mörg bit, virðist draga skordýr alveg einkalega mikið að mér..

                En nóg komið um skordýr,  það er allt og ekkert búið að gerast hérna hjá mér, byrjuð að venjast svona hversdagslegu lífi hérna, drekka te og slaka á... haha, eða svona næstum því, bráðum að koma sumarfrí og er orðið allt of heitt..

                Man ekki alveg hvar ég var stödd þegar ég bloggaði seinast, orðið svolítið langt síðan...:/:/:P En allavega þá var þarna fyrstu vikuna í október eitthver meyjarhátíð, það var fínt, enginn skóli, vorum bara á í íþróttasvæðinu þar sem áttu að vera eitthverjar íþróttakeppnir en meirihlutinn sat bara, borðaði kex og drakk mate, ágætt svo sem. Í enda hátíðarinnar var síðan skrúðganga, þar sem labbað var með eitthverja þvílíkt stóra styttu af þessum dýrlingi, greyið mennirnir sem voru að halda á henni , og það keyrði bíll með sem var með þvílíkt stóra hátalara þar sem eitthver kona gargaði alla skrúðgönguna, eitthvað hver er móðir okkar og allir svöruðu María... svolítið þreytandi í næstum klukkutíma... eftir skrúðgönguna voru eitthverjir indjánadansar, því það voru víst indjánar sem fundu þessa styttu og eitthver skemmtiatriði.  Einn laugardaginn fór ég síðan með öllum skiptinemunum á eitthverja lokahátíð hjá eitthverri enskustofnun(ef þú vilt læra ensku verðuru eiginlega að fara í svona stofnun þar sem það er mjög takmarkað sem þú lærir í skólanum) og þurftum að kynna AFS, sungum eitthvað lag og sögðum hvaðan við vorum,, jáaa gaman að því.. og fórum síðan nokkur í 18 ára afmæli eftir það...

                Keppti síðan á einu stykki frjálsíþróttamóti um daginn, allt of heitt en vann þó eitt gull og eitt silfur... haha ekki slæmt miðað við slakann árangur þar sem formið er nú ekki alveg upp á sitt besta .. fer einu sinni í viku í frjálsar...

Held hérna áfram í salsa, þar sem ég ströglast áfram við ná þessum mjúkum mjaðmahreyfingum sem allir Suður- Ameríkubúar hafa í blóðinu, er einmitt sýning 7.des..hmmm... Er líka í Tangó og ekki gengur það nú mikið betur, mjög fágaður og dramatískur dans, þar sem þú átt að láta tónlistina og söguna í laginu stjórna þér og hugsa ekki neitt... hmm.. allir lifa sig voðalega inn í þetta en gengur ekki alveg eins vel hjá mér, skil heldur ekki textann í laginu mjög vel..  En annars er þetta ekkert leiðinlegt mjög gaman að prífa eitthvað svona nýtt... :D:D

                Eins og er, er ég stödd í skemmtilegum lokaprófum, sem ég þarf að taka er nú samt meira en hálfnuð.. :D Það verður skemmtileg útkoman úr þeim, er ekki alveg að ná um hvað sum fögin eru, þar að auki eru glósurnar mínar ekki upp á það besta, þar sem kennararnir tala mjög hratt og við þurfum að skrifa í takt við það og það gengur nú ekki alltaf mjög vel hjá mér, er líka í voðalega skrýtnum fögum, Þekkingarfræði, Skipulagningu, sið- og borgarafræði, Stjórnmálafræði, Almennt umboð svo að eitthvað sé nefnt.. Er oft bara að skálda eitthvað í prófunum til að skila ekki auðu.. haha..

                Fór síðan niður í bæ á laugardaginn og ætlaði nú að reyna að kaupa eitthver föt, ekki varð nú mikið úr fatakaupum, keypti einar buxur og já 3 pör af sandölum haha.. en annars væri það ekki frásögum færandi nema að ég var að labba í mestum rólegheitum og finn allt í einu eitthvað kalt og blautt lenda á hægri handleggnum mínum, hélt kannski að það hefði skvesst smá vatn á mig.. en nei, nei hafði þá ekki eitthver fugl dritað svona rækilega á mig, og ekki var þetta bara venjulegur fuglaskítur, heldur var þetta eitthver svört klessa, eins og risastór olíublettur  og var þetta klínt út um allan handlegginn á mér.. Vissi ekkert hvað ég átti að gera, var með ekkert til að þurrka þetta.. þannig ég gekk rösklega að næstu sjoppu sem ég fann, fólk horfði skringilega á mig, og keypti þurrkur og vatn og reyndi að þrífa þetta af mér og ekki var horft minna á mig þá..  nuddaði og nuddaði og nuddaði en ekki gekk það betur en svo að ég var enn þá með stóran svartan blett á hendinni, nema hvað að hann var ekki blautur núna... bara svona til að draga aðeins meiri athygli að mér... og þetta er ekki í fyrsta skiptið sem að fugl sleppir einum blautum á mig, en í hitt skiptið var það þó bara venjulegur fuglaskítur...haha

                                                                                                              En já allavega komið nóg í bili..

Eyrún sem situr fyrir framan loftkælinguna..:P

3 mánuðir!!!Eyrún Halla Haraldsdóttir

jáhá það eru komnir 3 mánuðir síðan ég yfirgaf klakann.. ekkert smá fljótt að líða... en annars er ég alveg að skíta upp á bak með að blogga.. Reyni að koma með eitt stykki í vikunni þar sem ég hef ekki nægan tíma núna.. :P
en annars bara smá tilkynning :):)
Chao, Eyrún sem er að byrja að kafna úr hita..:P

Halló ég heiti Airum Haja Aritoteto og er íslami frá ÍrlandiEyrún Halla Haraldsdóttir

                Haha já það eru sko mörg nöfnin og þjóðernin sem ég er búin að fá hérna.  Það er alveg ótrúlegt hversu fólk getur ruglað þessu mikið og síðan gengur þetta manna á milli og verður ennþá ruglingslegara og áður en ég veit af er ég orðinn íslamskur íri, eða finni eða jafnvel Þjóðveri.. ekki líður á löngu þangað til að ég verð bara Kínverji líka..  haha enda vita líka fáir hvar Ísland er eða jafnvel að það sé til, og kemur oft mikill umhugsunarsvipur á fólk þegar ég það loksins áttar sig á að ég sé frá Íslandi. Og ekki batnar ástandið þegar ég segi þeim eftirnafnið mitt og endar það oft með Aritoteto, Haraltoto, þögn eða janvel Harry Potter. Samtöl geta orðið mjög ruglingsleg útfrá þessu og sömuleiðis vegna takmarkaðra samskiptamöguleika minna en svona lítur yfirleitt venjulegt samtal út þegar ég hitti nýtt fólk..

(þýtt yfir á íslensku)

Halló ég er Paula(það sem önnur hver stelpa hérna heitir það)

Halló ég er Eyrún

Ha, hvað sagðiru?

Eyrún

Airum?

Nei, Ey-rún

Jaa,, Eilum..

Nei, nei EY-RÚN

Eirum ekki rétt?

Jú, jú fínt(nógu nálægt)

Og hvaðan ertu?

Frá Íslandi

Ahh Írlandi..

Nei,nei Íslandi

Ahh Finnlandi...

Nei,nei ÍS-LANDI

Ha,, ertu íslami..

Haha... nei, ég er frá Íssss—landi

Ó Íslandi..(kemur mikill umhugsunarsvipur á manneskjuna)

Já,, það er lítil eyja í Norður- Evrópu..

Ahh,, jááá(virðist skýrast aðeins betur fyrir manneskjunni)

Og svona heldur þetta nokkurn veginn áfram og þið getið ýmindað ykkur hvað þetta verður flókið þegar þriðji aðilinn bætist inní eða jafnvel fleiri ..haha

                               En þrátt fyrir nokkur breytt persónueinkenni er allt gott að frétta af mér, fer hitnandi hérna með hverjum deginum og finnst mér orðið alveg nokkuð heitt þrátt fyrir að það sé bara að vora.. mér er meira að segja farið að kvíða aðeins fyrir sumrinu því það verður víst allt að 45 stiga hiti hérna.. Holy moly, næstum helmingi heitara en heitast verður á Íslandi...

                En annars er tíminn alveg ótrúlega fljótur að líða og strax komnir tveir mánuðir.. Og það hefur ýmislegt á daga mína drifið. Var AFS fundur einn laugardaginn með öllum fjölskyldum þar sem allir skiptinemarnir þurftu að sýna talent show.. jááá ég flutti eitthvað rapp á íslensku(vandræðalegt) og ruglaði öllu saman en það hefði enginn tekið eftir því hefði ég ekki orðið eins og epli í framan og bullaði ég bara eitthverju út úr mér. Sömuleiðis fór ég í 18 ára afmæli hjá Michael frá Nýja- Sjálandi og var hann ekki óhræddur að gera eitthvað brjálað við hárið á sér og má sjá myndir af því á www.myspace/eyrun90 ásamt fleiru. Einnig var fysti vordagur og nemendadagur þann 21 og fór ég með nokkrum bekkjarsystrum mínum að vatni hérna rétt hjá þar sem var fullt af fólki og fór dagurinn í að borða, borða, borða, dansa, borða og já borða..haha en fyrir utan það gengur nú bara allt sinn vanagang hérna og ekki mikið fleira að segja frá akkurat núna..

                                                                                                                             Chao todos, Airum Alah..

p.s. Gleymdi að segja frá að það er búin að vera mótmæli fyrir utan bygginguna á móti skólanum mínum alla vikuna og heyrist taktfastur trommutaktur allan daginn sem leiðir oft til þess að nemendur í skólanum fara að dansa upp úr þurru, gaman að því.

Smá bloggEyrún Halla Haraldsdóttir

Hola todos, hoy es día de maestro en Argentina y no escuela, me alegro muchoJ

Í dag er s.s. kennaradagurinn og enginn skóli, það er alveg ótrúlegt hvað Argentínubúar finna margar ásæður til að hafa frídag eins og t.d. í næstu viku er dagur einkaskólanna sem þýðir enginn skóli hjá þeim sem eru í einkaskóla og þar á eftir er nemendadagurinn sem þýðir frí líka, rosa þægilegt..:)

                En annars  er allt gott að frétta af mér. Fór í fyrsta tangó tímann minn á laugardaginn, sem gekk svona upp og ofan, allt öðruvísi en maður er vanur. Í endann á tímanum var síðan sett á tónlist og fólk mátti dansa að vild, því það voru margir þarna sem voru búnir að dansa lengi, ég og Ricci sem kom með mér ákváðum að það væri nú best að sitja bara hjá, en það dagði nú ekki lengi því okkur var boðið upp í dans og nei var ekki svarmöguleiki. Ég var eins og eitthver fáviti þarna, vissi ekki neitt og maðurinn sem ég var að dansa við var þvílíkt flinkur... mjög vandræðalegt, en sem betur fer tókst mér með mikilli kænsku að koma mér undan næsta lagi og settist niður og þóttist vera að laga skóinn minn eitthvað svo mér yrði nú ekki boðið upp aftur, en Ricci var nú ekki alveg svo heppin og sá ég skelfingarsvip skína af andliti hennar yfir allt dansgólfið.. haha.. þetta var frekar skondin tími. Um kvöldið bauð Valentine síðan öllum frá AFS heim til sín að borða pizzur og ætluðum við síðan að fara í 18 ára afmæli hjá eitthverjum strák sem okkur hafði verið boðið í. En 18 ára afmæli eru stór afmæli hjá strákum hérna í Argentínu og er það siður að þeir krúnuraki sig líka, hehe það eru ekki allir mjög sáttir með það. Fórum í afmælið en það var enginn stemming þannig við fórum bara á boliche(bar) í staðinn sem var mjög fínt J

                Á mánudaginn fór ég síðan á íþróttasvæðið til að velja eitthverja íþrótt til að iðkaJ ákvað að horfa á eina „fimleika“ æfingu þarna.. haha.. þetta var eins og að fara 30 ár aftur í tímann, pínulítið svæði og áhöldin ekki upp á marga fiska, kannski eitt stökkbretti og nokkra dýnur og svo stökkgólf sem var alveg að gefa sig.. hummm... veit nú ekki alveg hvort maður fari að æfa þetta eitthvað.. :p

                Í gær fór ég síðan í eitthvað kaffiboð fyrir kennara á hóteli með mömmu minni því hún er kennari og var þetta í tilefni kennaradagsins. Allt voðalega fansy og borðaði ég ábyggilega byrgðir fyrir heilan mánuð, fannst eiginlega skrýtið að ég gæti staðið upp eftir allan þennan mat.

                En ætli að þetta sé ekki komið gott í bili..

                                                                                                              Chao, Eyrún Ofursadda...

Gleymdi næstumEyrún Halla Haraldsdóttir

 Gleymdi næstum að minnast á að núna er ég búin að vera hérna í mánuð.. búið að vera ekkert smá fljótt að líða.. Með þessu áframhaldi verð ég komin heim áður en ég veit af.. :P

Voff,voffEyrún Halla Haraldsdóttir

Ákvað að skella hérna inn einu litlu bloggi..

                Það er nú búið að vera frekar rólegt hjá mér seinustu vikuna, búin að drekka ennþá meira te og bora ennþá meira í nefið.. með þessu áframhaldi verður ekkert eftir til að bora í.. 

                Þó er ég ekki bara búin að sitja heima.. á föstudaginn fór ég t.d. með bróður mínum, vinum hans og Ricci í eitthverja sveit.. en fjölskylda þessa vina bróður míns sem eru tvíburar eiga víst nokkra vínberja akra og hús á nokkrum stöðum og fórum við að skoða einn akurinn, þvílíkt stórir akrar, vorkenni fólkinu sem þarf að tína öll þessi vínber.  Skutluðum síðan Ricci heim en hún á heima í öðrum bæ sem er í ca. 20 km fjarlægð. Laugardagurinn var líka frekar rólegur, átti að fara í tangó tíma um morguninn en þegar á staðinn var komið var enginn tangó tími vegna þess að það var eitthver ráðstefna.. :/ fór þá bara í staðinn með bróður mínum aðeins niður í bæ og skoðuðum eitthvað hús þar sem Sarmiento átti heima, en hann er eitthver þvílík hetja hérna í Argentínu og stofnaði fullt af skólum og skrifaði bækur.  Fór síðan með honum á skáta dótið og fékk fullt af kökum.. hehe..  og á sunnudaginn fór ég loksins í mína fyrstu asado.. en það er einskonar Argentísk grillveisla og er mikil hefð hérna.. hún var upp í sveit og keyrðum við framhjá fullt af görðum sem voru fullir af fólki að grilla.. Ágætis grillveisla en ég verð nú að segja að sú íslenska sé aðeins betri.. :P:P

                Skipti síðan um bekk á mánudaginn, þannig ég er núna á seinasta árinu og er með krökkum jafngömlum mér og einu ári yngri. Mjög fínn bekkur en samt svolítið leiðinlegt að fara frá hinum því maður var búin að kynnast þeim ágætlega.. eða eins mikið og hægt er með takmörkuðum samskiptum.. :P  Spænskan er þó öll að koma og skilur maður meira með hverjum deginum en ég er samt ekki alveg viss um hvað sumir tímar snúast um, og er í eitthverjum fögum sem ég hef aldrei heyrt um áður, og velti oft fyrir mér hvað í ósköpunum kennarinn sé eiginlega að tala um..  Skrifa kannski eitthvað niður en þetta gæti allt eins verið tælenska því það er ekkert vit í þessu.. Veit ekki alveg hvernig þetta verður þegar maður þarf að taka prófin.. haha..

                En hér er allt morandi hundum og máttu búast við að rekast á 1 hund við hvern meter og eru þeir sko af öllum stærðum og gerðum. Allt frá litlum chiwawa(hvernig sem það er skrifað) hundum upp í stóra sheffer hunda. En ég held að hundarnir hérna  séu með eitthver skipulögð samtök því alltaf á ákveðnum tíma ca. 5 sinnum á sólarhring byrja allir hundarnir að gelta og þið getið ýmindað ykkur lætin miðað við hvað þeir eru margir.  Vaknar eiginlega alltaf kl 1 og 5 á nóttinni þegar þeir byrja að gelta.. hehe svolítið öðruvísi vekjaraklukka. Er einmitt svona gelt í gangi núna..Einnig má oft sjá þá ferðast um í hópum og reka eitthverja aðra hunda í burtu sem tilheyra ekki hverfinu, þeir eru eins og eitthver mafía. Kæmi mér ekki á óvart ef það kæmi í fréttunum einn daginn að það hefur fundist eitthver vörugeymsla með grunsamlegri hundastarfsemi.. hver veit..

En allavega komið nóg í bili, chao..

Hola, HolaEyrún Halla Haraldsdóttir

     Jæja, ákvað að skella hérna inn einu smá bloggi, þar sem ég ætla að reyna að standa við að koma einu slíku inn vikulega..

                Í vikunni sem leið hef ég verið að gera allt og ekkert(í orðsins fyllstu merkingu).  Byrjaði s.s. í salsa tímum á fimmtudaginn.. Það var mjög gaman.. er frekar lítill staður en voðalega kósý og lærði alveg fullt í einum tíma, er nú samt ekki að segja að ég fari að skella mér á dansgólfið strax, vantar ennþá þessa latin hreyfingar þar sem 13 ára fimleikadanskennsla kennir manni ekki mikið um það, er eins og spýtukall miðað við sumt fólkið þarna.. haha og lang stærst.

                Á laugardaginn fór ég síðan á stað sem heitir Zonda með bróður mínum og eitthverjum skátaflokki.. tókum strætó þangað, og þurfti að standa í um 40 mín í þvílíkum þrengslum hita og svita.. úff.. En þetta var mjög fallegur staður, í hálfgerðri sveit og fjöll allt í kring, löbbuðum eitthvað smá um og fengum síðan Chorri pan sem er einskonar Argentísk pylsa, með káli, tómötum og majónesi.. mjög gott J  eyddum mestum deginum þarna, voðalega kósý þarna;) fórum síðan niður í miðbæ að bíða eftir Ricci sem er frá Þýskalandi, en hún kom hingað í feb. Hún býr í bæ í 40 mín fjarlægð og ætlaði að fá að gista heima hjá mér um nóttina því við ætluðum út um kvöldið. Fórum ásamt nokkrum öðrum á stað sem heitir Oz, ágætis staður og hitti nokkra bekkjarbræður mína þarna. Fórum síðan heim um 5 og það lá við að ég sofnaði standandi, var svo þreytt og ekki bætti úr skák að ég var komin með allsvakalegt kvef.. :/

                Á þriðjudaginn þurfti ég ekki að fara í skólann sem þýddi að ég fengi að sofa lengur.. jeeeyy.. en krakkarnir í bekknum voru að fara að skoða eitthverja jarðskjálftamæla og ég þurfti ekki að fara því ég myndi hvort eð er ekki skilja neitt.. fór þann dag með bróður mínum á eitthvað íþróttasvæði og fékk eitthvað kort svo ég gæti fengið aðgang að því.. leist ágætlega á þetta svæði og ég farið þangað þegar ég vil en það er hægt að æfa allskyns íþróttir þarna:D    

                En annars fóru hinir dagarnir bara í þetta vanalega, drekka te, borða, sofa horfa á sjónvarpið.. og svo náttúrlega fara í skólann, þar sem maður er í hálfgerðu móki líka og skilur ekki neitt.. haha..

                Í Argentínu er samt rosalega mikil sjónvarpsmenning eða allavega það sem ég hef séð.. T.d. á hverjum virkum degi er spjallþáttur frá 13:30 -15:30 með eitthverri konu sem hefur verið í þessu í 40 ár, á eftir honum kemur annar „spjallþáttur“ sem er líka í tvo tíma þar sem talað er um fólkið sem var í hinum spjallþættinum, eða þá að sama fólkið er í honum. Í honum er líka alltaf talað um bailando por un sueno sem er svipað og dancing with the stars, og er vinsælasti þátturinn hérna.. og fólk getur talað endalaust um hann í sjónvarpinu, og þessi spjallþáttur fer kannski í það að tala um að ein kona datt og fékk smá kúlu og kannski talað um það alla vikuna.. haha mjög spes.. en fólk fer líka oft í þennan dansþátt til að koma sér á framfæri og mjög oft eru það svokallaðir gatos eða kettir eins og fólk í Argentínu vill kalla það, en þetta eru yfirleitt stelpur sem kannski hafa engann sérstakan hæfileika og koma í sjónvarpið og rífast við aðra gatos... og í dansþættinum eru þær mjög oftast í litlum sem engum fötum og miðað við það sem ég hef séð af þessum dansþáttum gengur hann meira út á það að klæða sig úr fötunum heldur en að dansa.. haha.. Að loknum þessum tveimur þáttum kemur ca. Klukkutíma þáttur sem gerir grín að fólkinu sem var í hinum þáttunum.. hahahaha...

                En allavega það er komið nóg í bili.. það er eitthvað vesen að setja inn myndir.. þannig í bili eru þær bara inn á myspaceinu mínu ;)

                Chao...:)  

Þá er komið að öðru bloggi..Eyrún Halla Haraldsdóttir

Jæja þá er komið að öðru bloggi J

Það er sko margt og mikið búið að gerast hjá mér í vikunni .  Það byrjaði á því seinasta miðvikudag að ég fór á Showbol....hummm... hvað ætli það sé eiginilega.. Hef aldrei heyrt um þetta áður fyrr en ég kom hingað til Argentínu. Þetta er s.s. fótbolti bara með miklu minni velli og styttri tíma, og er ætlað fyrir fyrrverandi atvinnumenn og áhugamenn  í fótbolta.Þeir geta líka tekið sér pásu nánast hvenær sem þeir vilja eins og það gerðist a.m.k. 2x að allir stoppuðu bara og ákváðu að fá sér vatnssopa.. haha.. Þetta var leikur á milli Argentínu og Chile og búið að auglýsa þetta rosalega mikið sérstaklega vegna þess að Maradona var að fara að spila.. Það var þvílík stemming á leiknum og ég veit ekki hvað Argentínubúar kunna mörg lög um fótbolta og hreyfingar með.. t.d. einu sinni fóru allir að hoppa og í annað skipti sveifluðu allir annarri hendinni og ég sat bara þarna eins og eitthver bjáni og vissi ekki neitt.


               
Á laugardaginn var síðan AFS hittingur. Hittumst heima hjá Michael sem er frá Nýja- Sjálandi og mæting var um 9 en flestir voru þó ekki komnir fyrr en um 11.. haha.. það eru víst allir alltaf seinir í Argentínu. Mjög gaman að hitta hina krakkana og heyra hvernig þeim gengi og allir virtust voða ánægðir. Borðuðum pizzur og Lomos sem er eins konar Argentísk breiðloka.. mjög góð en jafnast þó ekkert á við Pulló. Eftir það fórum við sem höfðum aldur til á skemmtistað að dansa.. svaka stuð. Og þegar staðurinn var að loka um 5 leytið fengu allir sem vildu heitt súkkulaði, því það átti víst að vera svo kalt úti.. haha.. samt var ábyggilega 10 stiga hiti.      

                Á sunnudaginn bauð síðan Ramiro mér og bróður mínum á Salsa keppni. Þetta var eitthver úrslitakeppni fyrir landskeppni og til að fara á heimskeppni. Svakalega flinkir dansarar.. verst að ég gleymdi myndavélinni :/:/  hefði sko viljað taka þetta upp, sömuleiðis var fullt af sýningaratriðum með alls kyns dönsum. Keppnin átti að byrja kl 10 en byrjaði svo ekki fyrr en hálf tólf... . Eftir keppnina breyttist staðurinn í skemmtistað og flestir fóru að dansa salsa.. þvílkt flinkir.. maður sæi þetta aldrei á Íslandi. Ég dirfðist ekki einu sinni að stíga á dansgólfið.. Komum síðan heim um hálf fimm en það var ekki skóli daginn eftir vegna þess að það var eitthver frídagur. Eða hann var reyndar á sunnudeginum en samkvæmt lögum í Argentínu færist frídagurinn yfir á mánudag ef hann er á sunnudegi fyrir utan jólin og þjóðhátíðardag.. Nokkuð þægilegt:D

                 Hér í San Juan er líka sérstakur vindur sem heitir Zonda og er víst bara á nokkrum stöðum í heiminum.  Hann er þvílíkt heitur og þurr, eins og hann kom á föstudaginn og var þá hitinn úti 32°C en á laugard. bara 15°C. Það kemur víst oft fyrir að fólk deyi í honum, þó aðallega gamalt og hjartveikt. Ég átti til dæmis að fara á eitthverja hátíð í skólanum á föst, seinni partinn en það var ekki heldur skóli þá, vegna þess að það var eitthver dýrlingadagur, þægilegtJ en mamma mín hér sagði að ég ætti ekki fara vegna vindsins og mátti helst ekki fara út. Það kom síðan í fréttunum seinna um daginn að það hefði kviknað einhversstaðar í út af honum og tré rifnað upp.

                Á  morgun byrja ég síðan í Latin rhytma tímum þar sem maður lærir Latin dansa, hlakka til að fara loksins að gera eitthvað, þótt það sé voðalega kósý að sitja og drekka te... en það verður svolítið þreytandi til lengdar.. :P

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eyrún Halla Haraldsdóttir
  • Netfang: halla_9090@hotmail.com
  • Staður: San Juan
  • Símanúmer: 8680370
  • Um mig: Ég heiti Eyrún og ég hef haldið út í heim sem skiptinemi í Argentínu:)
  • Annað: Heimasími 0054-264-434-2882 Gsm sími : 00549-264-5674731 Heimilisfang: Barrio Udap 3 Manzana C Monoblock 6 Primer Piso 5400 Rivadavia, San Juan Argentina

Auglýsing

Klukkan

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari